Járnhliðið úr Dachau-útrýmingarbúðunum með áletruninni „vinnan frelsar“ (Arbeit macht frei) sem var stolið fyrir tveimur árum er komið aftur á sinn stað. Hliðið sem er um 100 kíló að þyngd fannst fyrir utan Björgvin í Noregi í byrjun desember síðastliðinn eftir nafnlausa ábendingu.
Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.
„Ég varð miður mín yfir því að minning um fórnarlömb útrýmingarbúðanna hafi verið vanhelguð,“ sagði Jean-Michel Thomas, forseti Dachau-útrýmingarbúðanna. Hann sagði jafnframt að tilgangurinn með því að fjarlægja hliðið hafi verið tilraun til að þurrka út söguna. Hann hvatti lögreglu til að rannsaka málið af fullum krafti.
Í upphafi átti að senda þangað pólitíska fanga en í seinni heimsstyrjöldinni var búðunum breytt í útrýmingarbúðir þar sem yfir 41 þúsund gyðingar voru teknir af lífi.
Lögreglan sagði á sínum tíma þegar hliðið hvarf að í rannsókn væri að kanna hvort nýnasistar hefðu staðið á bak við ódæðið. Lögreglan bauð tíu þúsund evrur fyrir ábendingu um hvarfið.
Þess má get að sænskur nýnasisti stal sambærilegu hliði úr Auschwitz-útrýmingarbúðunum árið 2009. Sá var handtekinn og fangelsaður í tvö ár.