Alexei Navalny, leiðtogi rússnesku stjórnarandstöðunnar hefur verið úrskurðaður í 15 daga fangelsi fyrir að hlýða ekki skipunum lögreglu í fjölmennum mótmælum sem haldin voru í Moskvu í gær.
Navalny er í hópi hundruð manna sem voru handtekinn í mótmælunum sem haldin voru víða um land.
Evrópusambandið hafði áður hvatt til þess að rússnesk stjórnvöld leysi án tafar úr haldi hundruð mótmælenda sem voru handteknir er þeir tóku í gær þátt í friðsömum mótmælum gegn spillingu. Bandarísk stjórnvöld hafa einnig fordæmt handtökurnar.
Dómstóll í Moskvu hafði áður dæmt Navalny til að greiða 20.000 rúblur, eða um 38.000 kr. fyrir að skipuleggja mótmælin. Rússnesk stjórnvöld saka stjórnarandstöðuna um að hvetja til lögbrota og ofbeldis. Segja þau nokkur þeirra ungmenna sem tóku þátt hafa fengið greitt fyrir þátttöku sína.
Navalny hefur hins vegar ítrekað ásakanir sínar á hendur Dmitry Medvedev forsætisráðherra Rússlands um spillingu, sem voru ein helsta ástæðan fyrir mótmælunum í gær.