Alþjóðleg stofnun sem vaktar notkun efnavopna í heiminum segir að upplýsingar um að efnavopnaárás hafi verið gerð í sýrlenska þorpinu Khan Sheikhun séu trúverðugar.
Að minnsta kosti 87 létu lífið í árásinni, þar af mörg börn.
Stofnunin segir að sérfræðingar hennar hafi greint allar þær upplýsingar sem fundist hafa um árásina og að það sé þeirra mat að ásakanir um að efnavopnaárás hafi verið gerð séu trúverðugar.
Bashar-al Assad Sýrlandsforseti segir að fréttir af efnavopnaárás hers hans séu „100% tilbúningur“. Þetta segir hann í einkaviðtali við AFP-fréttastofuna. „Það var engin skipun gefin um nokkra árás.“
Tyrkir segjast hafa sannreynt að sarín-taugagasi hafi verið beitt í árásinni.
Sjónarvottar segja að orrustuþotur hafi flogið yfir þorpið. Rússar hafa sagt að þeir hafi ekki beitt efnavopnum en að orrustuþotur hafi varpað sprengjum á vopnabúr uppreisnarmanna þar sem efnavopn hafi verið geymd.
Á myndskeiðum sem tekin voru á vettvangi árásarinnar mátti sjá börn berjast við að ná andanum og froðu vella úr munnvikum þeirra.
Nokkur fórnarlömb árásarinnar voru flutt til nágrannalandsins Tyrklands til meðferðar. Heilbrigðisráðherra Tyrkja segir að samkvæmt rannsóknum á þeim sé ljóst að um sarín-taugagas hafi verið að ræða.
Assad segir í samtali við AFP að sýrlensk yfirvöld hafi látið efnavopnabúr sitt af hendi árið 2013 og bætti við: „Jafnvel þótt við ættum þau, myndum við ekki nota þau.“
Rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna komst að því að Sýrlandsher hefur beitt efnavopnum gegn óbreyttum borgurum í stríðinu, m.a. árið 2013.