Bresk kona á þrítugsaldri lést í morgun þegar hún féll niður frá íbúð á 10. hæð í fjölbýlishúsi í Benidorm á Spáni.
Konan hafði verið í gleðskap í íbúðinni ásamt fleiri Bretum. Haft er eftir talsmanni lögreglunnar í frétt AFP að málið sé í rannsókn.
Talsmaðurinn gat ekki veitt nánari upplýsingar um málið, þar á meðal hversu gömul konan hafi verið, en samkvæmt héraðsmiðlum var hún 25 ára gömul.
Ekki liggur fyrir hvort um slys var að ræða, sjálfsvíg eða hvort konunni hafi verið hrint.