„Hann var svo rólegur og kurteis strákur.“ Svona lýsir einn aðili líbíska samfélagsins í Manchester hinum 22 ára gamla Salman Abedi sem framdi hryðjuverkaárásina þar í borg í gærkvöldi.
„Bróðir hans, Ismael, er mjög opinn og mannblendinn en Salman var mjög rólegur og þögull. Mann hefði aldrei grunað að hann gæti gert eitthvað þessu líkt,“ er haft eftir ónafngreindum aðila líbíska samfélagsins í Manchester á AFP-fréttaveitunni.
Eins og mbl.is hefur greint frá var Abedi fæddur í Manchester árið 1994 og var sonur líbískra flóttamanna sem komu til Bretlands til að flýja stjórn Gaddafi. Abedi var einn fjögurra systkina. Faðir Abedi er þekktur í líbíska samfélaginu í Manchester, en talið er að fjölskyldan hafi nýverið snúið aftur til Líbíu.
Um var að ræða sjálfsmorðssprengjuárás og hafa hryðjuverkasamtökin Ríki íslams lýst yfir ábyrgð á ódæðinu sem varð 22 að bana. Þá slösuðust 59 en árásin var gerð á Manchester Arena-tónleikahöllina við lok tónleika bandarísku söngkonunnar Ariana Grande.
Lögregla hafði áður haft afskipti af Abedi að því er fram kemur í frétt Guardian. Skilríki hans fundust á vettvangi en talið er að hann hafi ferðast frá London til Manchester til að fremja ódæðisverkið. Lögregla hefur nú leitað á heimili bróður hans í Manchester og handtekið einn mann.
Lögreglan í Manchester hefur staðfest að Abedi sé hinn grunaði. Sagði Ian Hopkins lögreglustjóri að nú væri forgangsmál að rannsaka hvort Abedi hafi verið einn að verki eða hvort hann hafi verið hluti af stærra neti. Rannsókn á málinu er nú í fullum gangi hjá yfirvöldum í Bretlandi.