Salman Abedi, sem er grunaður um að hafa sprengt sjálfan sig í loft upp á tónleikunum í Manchester á mánudag þar sem 22 manns fórust, hringdi í móður sína nokkrum klukkustundum fyrir árásina. Bað hann hana að fyrirgefa sér. Þetta hefur AP-fréttastofan eftir líbískum embættismanni.
Að sögn móður Salmans yfirgaf hann Líbíu fjórum dögum fyrir árásina. Segir hún hann svo hafa hringt í hana daginn sem árásin var gerð og sagt að það væri komið að hans kveðjustund.
Samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum í Líbíu hafa móðir og systkini Salmans verið kölluð til í skýrslutökur í kjölfar árásarinnar. Tveir bræður hans og faðir hafa verið handteknir af öryggislögreglunni í Líbíu en fullyrt er að annar bróðirinn, Hashem Abedi, hafi vitað allt um áformin.
Hashem er grunaður um tengsl við hryðjuverkasamtökin Ríki íslams sem lýst hafa yfir ábyrgð sinni á árásinni. Líbíska öryggislögreglan telji að hann hafi enn fremur sjálfur haft áform um hryðjuverk.
Sjö hafa verið handteknir í Bretlandi í kjölfar árásarinnar og hefur breska lögreglan m.a. fundið búnað til sprengjugerðar í víðtækum húsleitum í Manchester.