Lögreglan í Manchester hefur nú handtekið 44 ára gamlan mann sem grunaður er um að hafa átt þátt í hryðjuverkaárásinni á mánudag. Eru því alls níu menn í haldi bresku lögreglunnar grunaðir um tengsl við málið. 22 létu lífið og 59 slösuðust þegar Salman Abedi sprengdi sig í loft upp í lok tónleika tónlistarkonunnar Ariana Grande í Manchester Arena-tónleikahöllinni.
Yfirmaður hjá hryðjuverkadeild bresku lögreglunnar sagði fyrr í dag að lögreglan hefði handtekið „stóran hluta“ þeirra sem stóðu að baki árásinni. Auk þeirra átta sem eru í haldi í Bretlandi eru faðir og bróðir Abedis í haldi lögreglunnar í Líbíu.
Eru hinir handteknu í Bretlandi allir karlmenn á aldrinum 18-44 ára. Meðal þeirra er Ismail Abedi, 23 ára gamall bróðir árásarmannsins.
Mikill viðbúnaður er í Bretlandi en rannsókn lögreglu beinist einkum að því hvort hryðjuverkahópur frá Líbýu hafi staðið á bak við árásina. Hryðjuverkasamtökin Ríki íslams hafa lýst yfir ábyrgð á ódæðinu.
Lögreglan leitaði á nokkrum stöðum í Manchester í gær og fann meðal annars hluti sem svipar til þeirra sem notaðir voru í sprengjuna sem sprakk í anddyri tónleikahallarinnar á mánudagskvöldið.