Breska lögreglan hefur í kvöld handtekið 19 ára karlmann í tengslum við rannsókn á árásinni í Manchester á mánudagskvöld. Fór handtakan fram eftir að húsleit var gerð í suðausturhluta borgarinnar.
Þar með hafa 13 manns verið handteknir í kjölfar árásarinnar, að sögn lögreglunnar í Manchester.