Martha er risastór löt tík sem prumpar í sífellu. Og nú hampar hún titlinum ljótasti hundur heims.
Síðustu ár hafa hárlausir, smávaxnir og aldraðir hundar unnið keppnina sem haldin er árlega í Bandaríkjunum og nú í 29. sinn.
Martha er þriggja ára, af tegundinni Neapolitan Mastiff og er um 60 kíló að þyngd. Hún heillaði dómarana upp úr skónum. Martha á það til að hlamma sér niður þegar letin tekur völdin og það gerði hún ítrekað á sviðinu í gær svo skinnið á höfði hennar, sem hún hefur meira en nóg af, nær huldi trýnið. Slíkt sjálfstæði féll dómurunum vel í geð en á hefðbundnari hundasýningum hefði Martha ekki átt möguleika.
Martha er einna þekktust fyrir það að hrjóta ógurlega. Hún sofnaði reyndar ekki í keppninni svo að dómararnir fengu ekki að heyra óhljóðin. Það kom ekki að sök: Hún þótti skara fram úr.
„Ég myndi fagna en ég verð að fá mér blund,“ sagði eigandinn, Shirley Zindler, að Martha væri eflaust að hugsa er hún fékk verðlaunin.
Keppnin um ljótasta hund heims er haldin til að vekja athygli á velferð dýra. Margir hundanna sem keppa hefur verið bjargað úr höndum eigenda sem ekki sinntu þeim eða fóru illa með þá.
Martha hefur ekki alltaf átt sjö dagana sæla. Henni var bjargað undan illri meðferð af dýraverndunarsamtökunum Dogwood Animal Rescue Project sem standa að keppninni. Hún var að verða blind vegna vanrækslunnar en nú hefur hún fengið nýjan eiganda sem sinnir henni vel.
Keppinautar Mörthu í ár voru smávaxnari en hún (sjá myndir hér að neðan). Í raun var það svo að Martha var eini keppandinn sem eigandinn gat ekki haldið á.