Þýska táningsstúlkan Linda W., sem strauk að heiman til að ganga til liðs við hryðjuverkasamtökin Ríki íslams, sér nú eftir þeirri ákvörðun sinni og þráir ekkert heitar en að komast heim til fjölskyldu sinnar að sögn Reuters-fréttastofunnar.
Þýska tímaritið Der Spiegel greindi frá því á laugardag að fjórar þýskar konur sem gengu til liðs við Ríki íslams, m.a. 16 ára stúlka frá smábænum Pulsnitz, sætu í írösku fangelsi eftir fall Mósúlborgar.
Lorenz Haase, saksóknari í Dresden, staðfesti að stúlkan sem hefur aðeins verið nefnd sem Linda W. hefði fundist í Írak og að hún nyti nú aðstoðar þýska sendiráðsins í landinu. Hann vildi þó ekki tjá sig um aðstæður hennar.
Þýsku fjölmiðlarnir NDR, WDR og Süddeutsche Zeitung segjast hins vegar hafa náð viðtali við Lindu W. á sjúkrahúsi herstöðvarinnar í Bagdad og að hún hafi sagst vilja fara heim.
„Ég vil bara komast í burtu,“ var haft eftir henni. „Ég vil komast burt frá stríðinu, frá öllum þessum vopnum og hávaðanum. Mig langar bara heim til fjölskyldu minnar.“
Linda W. á að hafa sagt fjölmiðlunum að hún sæi eftir að hafa gengið til liðs við Ríki íslams og að hún óskaði þess að verða framseld til Þýskalands þar sem hún myndi sýna yfirvöldum fullan samstarfsvilja.
Er hún sögð hafa verið með skotsár á vinstra læri og sár á hægra hné sem hún sagðist hafa hlotið í þyrluárás.
Saksóknari í Þýskalandi greindi í síðustu viku frá því að verið væri að kanna fregnir af því að 16 ára þýsk stúlka væri nú til rannsóknar hjá íröskum yfirvöldum eftir að hún var tekin ásamt fjórum öðrum konum í þeim hluta Mósúl sem var á valdi Ríkis íslams.
Voru þýsk yfirvöld þá sögð vera að kanna hvort um væri að ræða stúlku sem hvarf síðasta sumar frá Pulsnitz. Tilkynnt var um hvarf Lindu W. sem breska dagblaðið Telegraph segir heita fullu nafni Lindu Wenzel fyrir ári síðan. Hún hafði búið með móður sinni og stjúpföður í litla bænum Pulsnitz. Ólst hún upp á kristnu heimili, en sýndi ekki áhuga á trú þar til nokkrum mánuðum fyrir hvarfið. Þá sagði hún foreldrum sínum að hún hefði áhuga á íslamstrú.
Vinir hennar frá heimabænum segja hana hafa snúist yfir til íslamstrúar um þetta leyti eftir að haft hafði verið samband við hana í gegnum spjallrásir. Í kjölfarið fór hún að læra arabísku, taka kóraninn með sér í skólann, ganga í íhaldssömum klæðnaði og verða mjög áhugasöm um íslamstrú.
Er hún sögð hafa orðið ástfangin af vígamanni og því hafi hún stungið af frá heimili sínu í bænum Pulsnitz síðasta sumar til að halda til Tyrklands þar sem þýska öryggislögreglan missti sjónar á henni þar til nú.