Lundúnalögreglan telur ástæðu til að ætla að hópmanndráp (e. corporate manslaughter) hafi verið framið þegar kviknaði í Grenfell-turninum í síðasta mánuði. Greindi lögregla í dag íbúum turnsins frá að hún teldi ástæðu til að gruna að borgarráð eða þeir sem sáu um rekstur Grenfell-turnsins hefðu mögulega gerst sekir um glæp.
Talið er að um 80 manns hafi látið lífið þegar eldur kom upp í þessum 24 hæða turni hinn 14. júní sl. og hann varð alelda á skammri stundu.
BBC segir að í bréfi sem lögregla sendi íbúum í dag komi fram að lagt hafi verið hald á mikið magn gagna.
„Eftir frumrannsókn á þeim upplýsingum hefur yfirmaður þeirrar rannsóknar tilkynnt borgarráði Kensington og Chelsea-hverfis, sem og húsnæðisnæðisnefnd hverfisins, að ástæða sé til að gruna að stofnun og bæjarráð hafi gerst sek um hópmanndráp,“ sagði í bréfinu.
Lundúnalögreglan sendi þá frá sér yfirlýsingu í dag þar sem fram kemur að rannsókn á eldinum sé flókin og ítarleg og að eðlis síns vegna muni taka langan tíma að ljúka henni.
„Lundúnalögreglan hefur skyldur gagnvart þeim fjölskyldum sem misstu ástvini í eldinum og þeim sem lifðu brunann af, að halda þeim upplýstum um framgang rannsóknarinnar að því marki sem við getum,“ segir í yfirlýsingunni.
Breska löggjöfin um hópmanndráp kveður á um að þessi skilgreining eigi aðeins við um stofnanir, félög eða fyrirtæki og þess vegna sé ekki hægt að handtaka neinn einn einstakling í tengslum við slíka kæru.
Greint var frá því fyrr í dag að dúkur myndi hylja Grenfell-turninn meðan á rannsókn stæði. Gert er ráð fyrir að hann verði settur utan um vinnupalla á húsnæðinu í ágúst.
Búist er við að rannsókn á húsnæðinu sjálfu standi fram í nóvember þar sem fjölmargir leitarsérfræðingar vinna meðal annars að því að finna fórnarlömb eldsvoðans.