Staðfest hefur verið að þrír eru látnir eftir að átök brutust út á samkomu þjóðernissinna í Charlottesville í Virginíu í dag.
„Við höfðum fólk sem kom hingað til að valda öngþveiti, ringulreið og óskunda, sem endaði með andláti þriggja hérna í Charlottesville,“ segir framkvæmdastjóri borgarinnar Maurice Jones á blaðamannafundi.
32 ára kona lést þegar bifreið var ekið inn í hóp þeirra sem vitni segja að hafi verið mótmælendur samkomunnar. Var hún að ganga yfir götu þegar bíllinn skall á henni, segir lögreglustjórinn Al Thomas.
Ökumaður bifreiðarinnar, karlmaður, hefur verið tekinn í varðhald og lítur lögreglan á atvikið sem manndráp.
Orsakir þess að aðrir tveir létu lífið hafa ekki verið opinberaðar. Hlúa hefur þurft að að minnsta kosti 35 manns eftir átökin, en áverkar sumra hafa verið lífshættulegir að sögn Thomas.
Hundruð manna höfðu komið til borgarinnar til að annað hvort sækja samkomuna eða mótmæla henni. Átök voru fljót að brjótast út jafnvel þótt óeirðalögregla og þjóðvarnarliðið hefðu fjölmennt í miðborgina.