Tveir eru látnir eftir hnífstunguárás á vegfarendur á torgi í borginni Turku í Finnlandi síðdegis í dag. Lögreglan skaut árásarmanninn í fótinn og handtók. Að minnsta kosti átta fórnarlömb voru flutt á sjúkrahús og létust tvö þeirra skömmu síðar. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem var haldinn á lögreglustöðinni í Turku kl. 19 að staðartíma sem stóð yfir í rúman hálftíma.
Frétt mbl.is: Tveir látnir eftir árásina í Turku
Hinir látnu eru fullorðnir, lögreglan vildi ekki gefa frekari upplýsingar um fórnarlömbin.
Árásin er ekki rannsökuð sem hryðjuverk, að öðru leyti vill finnska lögreglan ekki tjá sig um mögulega ástæðu árásarinnar. Finnska lögreglan óskar eftir vitnum og myndefni frá vegfarendum.
Árásin átti sér stað um rúmlega klukkan fjögur að staðartíma í dag. Nærliggjandi hús voru rýmd eftir árásina. Fólk var hvatt til að halda sig heima hjá sér en lögreglan leitaði í fyrstu eftir fleiri mögulegum árásarmönnum. Mikill viðbúnaður er í Turku sem og víðar í Finnlandi vegna árásarinnar og hefur viðbúnaðarstig verið hækkað alls staðar. Lestarferðum hefur verið aflýst og eftirlit á flugvöllum aukið.
Lögreglan mun veita frekari upplýsingar í fyrramálið.