Grace Mugabe, forsetafrú Simbabve, hefur nú snúið aftur til heimalandsins eftir að hafa verið sökuð um að ráðast á unga fyrirsætu í Jóhannesarborg. Suðurafríska lögreglan hafði farið fram á að för forsetafrúarinnar frá landinu yrði stöðvuð á meðan málið væri til rannsóknar, en hún hefur nú fengið friðhelgi diplómata og er því frjáls ferða sinna.
Frétt mbl.is: Forsetafrúin sökuð um ofbeldi
Fyrirsætan, hin tvítuga Gabriella Engels, var á hóteli í Jóhannesarborg með sonum Mugabe þegar hún segir forsetafrúna hafa ráðist á sig. Segir hún Mugabe, sem er 52 ára, hafa verið vopnaða framlengingarsnúru og veitt sér með henni áverka á höfði.
Þá segir hún lífverði Mugabe hafa staðið hjá án þess að hafa komið sér til aðstoðar.
Forsetafrúin sneri aftur til Harare í dag með forsetanum, hinum 93 ára gamla Robert Mugabe. Heimildarmaður sagði Reuters-fréttastofunni að henni hefði verið veitt friðhelgi diplómata.
Myndir sem birtar hafa verið á samfélagsmiðlum sýna Engels með blæðandi höfuðáverka. Forsetafrúin á að hafa veitt henni áverkana á Capital 20 West-hótelinu í Sandton-hverfi.
Þangað á Mugabe að hafa komið ásamt lífvörðum sínum og sakað Engles um að búa þar með sonum hennar tveimur, Robert og Chatunga, sem báðir eru um tvítugt.
Haft er eftir Engels að þau hafi verið í hótelherberginu og synirnir hafi verið í næsta herbergi þegar forsetafrúin kom inn og fór að berja þau. Hún sé meðal annars með áverka á enninu og tekur fram að hún sé fyrirsæta sem hafi lífsviðurværi af útliti sínu.
Mugabe er 41 ári yngri en eiginmaður hennar, Robert Mugabe, og eiga þau þrjú börn saman.