Donald Trump Bandaríkjaforseti stóðst ekki freistinguna og leit upp á sólmyrkvann sem nú gengur yfir Bandaríkin, eftir að vera búinn að taka af sér sérstök hlífðargleraugu.
Bandaríska sjónvarpsstöðin NBC birti á Facebook-síðu sinni myndbandsupptöku sem sýnir þau Trump og eiginkonu hans Melaniu Trump á svölum þar sem þau berja sólmyrkvann augum. Bæði eru þar búin að taka niður sérstök hlífðargleraugu sem eiga að verja augun fyrir þeim skaða sem það getur valdið að horfa beint í sólina.
Forsetafrúin skartar þó dökkum sólgleraugum, en forsetinn sem er gleraugnalaus stenst ekki þá freistingu að kíkja upp aftur.
Sólmyrkvinn sást fyrst í Oregon á Vesturströndinni, en hann gengur hann nú þvert yfir Bandaríkin og er þetta í fyrsta sinn síðan 1918 að almyrkvi gengur þvert yfir Bandaríkin.
Gert er ráð fyrir að um 20 milljónir manna berji almyrkvann augum, og er nú mikið fjallað um hann í fjölmiðlum um allan heim. Þá má sjá á samfélagsmiðlum að hann vekur gríðarlega athygli almennings.