Finnskur dómstóll úrskurðaði fyrr í dag Abderrahman Mechkah í tveggja mánaða gæsluvarðhald. Hann stakk tvo til bana og særði átta í Turku í síðustu viku.
Mechkah er 18 ára gamall en áður hefur komið fram að hann er hælisleitandi frá Marokkó en hann kom til Finnlands á síðasta ári. Málið er rannsakað sem fyrsta hryðjuverkaárásin í Finnlandi.
Árásin beindist sérstaklega gegn konum en Mechkah réðst gegn þeim á markaðstorgi í Turku á föstudaginn. Árásarmaðurinn dvelur á sjúkrahúsi eftir að hafa verið skotinn í fótinn af lögreglu en hann kom fyrir dómara í gegnum myndsíma.
Mest öll yfirheyrslan fór fram bak við luktar dyr en myndir sem ljósmyndarar tóku við upphaf yfirheyrslunnar sýna hinn grunaða liggjandi í sjúkrarúmi.
Jafnframt verður farið fram á gæsluvarðhald yfir fjórum öðrum mönnum frá Marokkó sem voru handteknir nokkrum klukkustundum eftir árásina. Þeir voru handteknir við húsleit í fjölbýlishúsi í Túrkú og í miðstöð fyrir flóttafólk. Þeir eru grunaðir um aðild að árásinni. Allir neita sök.