Finnska lögreglan hefur handtekið tvo menn til viðbótar í tengslum við hnífstunguárás í Turku síðastliðinn föstudag. Tvær konur létu lífið í árásinni og átta slösuðust.
Fjórir aðrir eru í varðhaldi en árásarmaðurinn hefur verið nafngreindur sem Abderrahman Mechkah, 18 ára hælisleitandi frá Marokkó. Málið er rannsakað sem fyrsta hryðjuverkaárásin í Finnlandi.
Erlendir fjölmiðlar greina frá því að þeir sem voru handteknir í dag hafi gefið misvísandi upplýsingar um þjóðerni sitt. Þeir sögðu finnskum yfirvöldum að þeir væru frá Alsír en sænskum að þeir væru frá Marokkó.
Lögregla telur líkur á því að árásarmaðurinn sé ekki Mechkah, sem kom til Finnlands í fyrra og var umsókn hans um hæli hafnað. „Við teljum að hinn grunaði hafi veitt rangar upplýsingar við komuna til landsins,“ sögðu rannsóknarlögreglumenn við Reuters.