Söngkonan Miley Cyrus hefur tilkynnt að hún ætli að styrkja fórnarlömb fellibyljarins Harvey um 500.000 dollara, jafnvirði 52,6 milljóna íslenskra króna.
Cyrus brotnaði niður þar sem hún kom fram í spjallþætti Ellen DeGeneres og ræddi eyðilegginguna sem fylgt hefur Harvey. Stór svæði í Houston eru enn undir vatni en tugir þúsunda húsa eru á flóðasvæðunum.
„Ég vona að fólk geti reynt að ímynda sér hvernig það er þegar allt er tekið frá manni,“ sagði Cyrus en með styrknum fetar hún í fótspor Leaonardo DiCaprio, Söndru Bullock, Kim Kardashian og Beyonce, sem öll hafa lagt sitt af mörkum til styrktar fórnarlömbum náttúruhamfaranna.