Tala látinna af völdum hitabeltisstormsins Harveys sem gengið hefur yfir Texas í Bandaríkjunum síðustu daga er komin í 39. Stór svæði í Houston eru enn undir vatni en tugir þúsunda húsa eru á flóðasvæðunum.
Björgunaraðgerðir standa yfir í ríkinu, en 33 þúsund manns hafast við í neyðarskýlum.
Enn er varað við flóðum, en búist er við mikilli rigningu frá Louisiana til Kentucky næstu þrjá daga. Þá er vatnslaust í bænum Beaumont, en þar búa um 118 þúsund manns. Biluðu vatnsdælur þar vegna flóðanna og þurfti að rýma spítala í bænum.
Eins og greint var frá í morgun urðu sprengingar í efnaverksmiðju í Houston í morgun, en varað hefur verið við reyk úr verksmiðjunni. Nokkrir hafa leitað til læknis eftir að hafa andað að sér reyknum, en ákveðið var í morgun að rýma svæði innan þriggja kílómetra radíuss frá verksmiðjunni.
Eldurinn kom upp í geymi vegna vandræða með kælibúnað verksmiðjunnar eftir úrhellið sem fylgdi fellibylnum Harvey. Nauðsynlegt er að halda efnablöndum kældum í verksmiðjunni. Því er útilokað að koma í veg fyrir að það kvikni í verksmiðjunni.
CNN fréttastofan fylgist náið með ástandinu í Texas.