Franska lögreglan hefur ákært mann fyrir að ræna hinni níu ára Maëlys de Araujo sem hvarf í fjölskyldubrúðkaupi um síðustu helgi. Ekkert hefur til hennar spurst síðan þrátt fyrir ítarlega leit.
BBC segir ekki búið að gefa upp nafn hins ákærða, en að hann sé annar þeirra sem lögregla handtók fyrir helgi og yfirheyrði vegna málsins.
Síðast sást til Maëlys aðfaranótt sunnudagsins fyrir viku í veislusal í bænum Pont-de-Beauvoisin, sem er í 50 km fjarlægð frá Grenoble. Þar var hún í brúðkaupsveislu ásamt foreldum og fjölskyldu. Fjölmennt lið lögreglu og björgunarsveitarmanna hefur leitað hennar í skóglendi allt í kring án árangurs.
Telur lögreglan að stúlkunni hafi verið rænt og síðasta fimmtudag handtók lögregla 34 ára gamlan mann í tengslum við rannsóknina. Félagi hans og jafnaldri var handtekinn síðar sama dag, en í báðum tilvikum var ósamræmi í vitnisburði þeirra sem olli því að lögregla taldi rétt að yfirheyra þá frekar. Þeim var báðum síðan sleppt.
Í yfirlýsingu sem embætti saksóknara í Grenoble sendi frá sér í gær á hefur 34 ára karlmaður verið ákærður fyrir mannrán og fyrir að halda barni undir 15 ára aldri ólöglega innilokuðu.
Maðurinn, sem var gestur í brúðkaupinu neitar enn öllu og heldur við fyrri útskýringar að því er segir í yfirlýsingunni. Slíkt hafi þó „ekki sannfært rannsóknardómara“ sem ákváðu að ákæra hann.