Hin skaðlega Zika-veira sem veldur heilaskemmdum í ungum börnum gæti einnig falið í sér lækningarmátt. Fram til þessa hefur eingöngu verið litið á Zika-veiruna sem ógn við heilsu manna en það gæti breyst á næstu árum. BBC greinir frá.
Samkvæmt nýlegum rannsóknum bandarískra vísindamanna á heilafrumum fullorðinna músa getur vírusinn ráðist á og drepið skaðlegar krabbameinsfrumur í heila þeirra. Vírusinn lagðist ekki á heilbrigðar heilafrumur.
Enn sem komið er hafa ekki verið gerðar neinar rannsóknir á mönnum. Hins vegar binda sérfræðingar vonir við að hægt verði að koma veirunni fyrir í heila fullorðinna einstaklinga sem eru með heilaæxli og niðurstaðan verði sú sama og hjá músunum.
Þetta kemur fram í tímaritinu Journal of Experimental Medicine.
Zika-veiran smitast aðallega með moskítóbiti. Fáir látast af völdum veirunnar og aðeins einn af hverjum fimm er talinn sýna einkenni hennar. Sjúkdómurinn breiddist víða út í Rómönsku Ameríku, í Karíbahafi og víðar.