Bretar munu veita 25 milljónum punda til viðbótar í neyðaraðstoð til eyja í Karíbahafi sem urðu illa útleiknar vegna fellibyljarins Irmu sem ólmaðist á eyjunum. Boris Johnson, utanríkisráðherra Breta, heimsótti eyjarnar Anguilla og Bresku-Jómfrúareyjarnar nýverið.
Eftir heimsóknina sagði utanríkisráðherrann að „Bretum á eyjunni yrði heitinn stuðningur“ og að sá stuðningur væri ekki til skamms tíma.
Áður hafði Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, sagt að 32 milljónum punda yrði varið í neyðaraðstoðina. Alls veita Bretar því 57 milljónum punda til neyðaraðstoðarinnar sem jafngildir um 8 milljörðum íslenskum króna. Þetta eru um May greindi frá þessu á breska þinginu í dag.
May hafði sætt gagnrýni fyrir að bregðast ekki nógu fljótt við ástandinu.
Núna eru yfir 1.000 hermenn á svæðinu og 200 til viðbótar munu mæta á næstu dögum auk 60 lögreglumanna, sagði forsætisráðherrann.
Níu manns létust á þeim eyjum sem heyra undir Breta en að minnsta kosti 50 manns léstust á eyjunum í Karíbahafi.