Drengur á unglingsaldri sem ákærður hefur verið fyrir að koma sprengju fyrir í neðanjarðarlest Lundúna í lok síðustu viku, keypti íhlutina í sprengjuna á Amazon.
Drengurinn Ahmed Hassan er 18 ára. Hann kom fyrir dómara í dag og var þá ákærður fyrir morð viku eftir að sprengja sprakk að hluta í neðanjarðarlest við Parsons Green lestarstöðina með þeim afleiðingum að 30 manns særðust.
Sprengjan innhélt m.a. sprengiefnið TATP (triacetone triperoxide) og segir saksóknari innihaldið í sprengjuna hafa verið keypt í vefverslun Amazon. „Sprengikveikurinn sprakk, en olli ekki frekari TATP-sprengingu, líklega vegna ónákvæmni við samsetningu,“ hefur AFP eftir saksóknaranum.
Öll nauðsynleg innhaldsefni til að valda alvarlegum skaða voru þó í sprengjunni, m.a. klukka, málmflísar, hnífar og skrúfur.
Hassan var handtekinn á laugardaginn fyrir viku eftir að kennsl voru borin á hann af hafnarstarfsmanni þar sem hann var að reyna að komast með ferju frá Dover.
Sagði saksóknari Hassan hafa „brenglaðar stjórnmálaskoðanir“ og að hann legði hatur á bresk stjórnvöld og breskt þjóðfélag.