Liðforingi í lífvarðasveit forseta Filippseyja, Rodrigo Duterte, fannst látinn á lóð forsetabústaðarins í Manilla.
Eiginkona Harin Gonzaga, 37 ára, fann hann þar sem hann hafði verið skotinn í hjartað.
Yfirmaður lífvarðasveitarinnar, Lope Dagoy, segir ekkert benda til þess að glæpur hafi verið framinn né heldur merki um átök. Lögreglan rannsaki málið. Atvikið átti sér stað í húsi sem er langt frá þeim stað sem Duterte býr.
Dagoy segir að enginn úr lífvarðasveitinni hafi vitað um skotárásina fyrr en eiginkona hans fann hann látinn.
Eiginkonan, sem er liðþjálfi í lífvarðasveitinni, segir að hún viti ekki til þess að neitt hafi bjátað á í lífi eiginmannsins fyrir utan mikið vinnuálag, að sögn Dagoy.
Gonzaga bar ábyrgð á starfsemi öryggissveita forsetans en var ekki persónulegur lífvörður hans.