Skotárásin í Las Vegas í gær er sú mannskæðasta í Bandaríkjunum fram til þessa. Nöfn nokkurra af þeim 59 sem árásarmaðurinn skaut til bana hafa verið opinberuð. Meðal fórnarlamba eru fyrrum hermenn, hjúkrunarfræðingur, fallhlífarstökkvari, eiginkonur, eiginmenn, ömmur og sérkennari, allt fólk sem á einstaka sögu.
Hér er það sem við vitum um fórnarlömbin.
Charleston Hartfield:
Charleston var fyrrum hermaður og starfaði sem lögreglumaður í Las Vegas. Hann sá einnig um þjálfun yngri flokka í amerískum fótbolta. Charleston var ekki á vakt þegar árásarmaðurinn hóf skothríð heldur var hann að njóta sín á tónleikunum.
Friends identify the Las Vegas police officer killed in Sunday's massacre: Charleston Hartfield, 34 https://t.co/CWu6qqTe9Q pic.twitter.com/dnHFnhQer0
— The Trace (@teamtrace) October 2, 2017
Sonny Melton:
Hjúkrunarfræðingurinn Sonny bjargaði lífi eiginkonu sinnar, Heather, með því að skýla henni fyrir skothríðinni með þeim afleiðingum að hann varð sjálfur fyrir skoti. Sonny og Heather voru búsett í Tennessee og höfðu verið gift í rúmlega eitt ár.
Denise Burditus:
Denise var á tónleikum kántrístjörnunnar Jason Alden ásamt eiginmanni sínum Tony. Hann greindi frá því á Facebook síðu sinni að hún hefði dáið í fanginu á honum. Denise var tveggja barna móðir og var í þann mund að verða amma í fimmta sinn. Hún birti mynd af þeim hjónum á Facebook, skömmu áður en skotárásin hófst.
Sandy Casey:
Sandy var búsett Manhattan Beach í Kaliforníu þar sem hún starfaði sem sérkennari. Sandy, sem var á tónleikunum ásamt unnusta sínum, var skotin í bakið af árásarmanninum. ABC7 fréttastofan hefur eftir samstarfsmanni Sandy að hún hafi verið elskuð og dáð af nemendum sínum sem og samstarfsmönnum.
#Vermonter killed in #LasVegas massacre was an engaged teacher who "never had a bad day." More on the life of Sandy Casey - at 11 on @wcax pic.twitter.com/BIsqkqz9jw
— Priscilla Liguori (@WCAX_Priscilla) October 3, 2017
Chris Roybal:
Fyrrum hermaðurinn Chris var nýkominn heim frá Afganistan. Hann var á tónleikunum ásamt móður sinni en leiðir þeirra skildu rétt áður en skothríðin hófst. Hún hljóp í gegnum byssuskotin í leit að syni sínum ne kom að honum látnum. „Hann fór í bardaga og kom óslasaður heim, en svo fer hann á tónleika og deyr,“ sagði móðir Chris í samtali við NBC4 fréttastöðina.
Corona veteran loses life in #LasVegasShooting after surviving war in Afghanistan https://t.co/vsNoAucvcD pic.twitter.com/pHhclhnF0Z
— ABC7 Eyewitness News (@ABC7) October 3, 2017
Thomas Day:
Smiðurinn Thomas var á tónleikunum ásamt fjórum uppkomnum börnum sínum. Þau lifðu árásina af en Thomas lét lífið. „Hann var besti pabbi í heimi. Þess vegna voru börnin með honum,“ hefur LA Times eftir föður Thomas.
Hannah Ahlers:
Hannah var þriggja barna móðir. Hún var fallhlífarstökkvari og mikil útivistarkona. Vinkona hennar lýsir henni sem „einni af fallegustu konum sem hún hefur kynnst, jafnt að innan sem utan.“
Angie Gomez:
Angie var klappstýra og búsett í Kaliforníu. Fjölskylda hennar lýsir henni sem „glaðværri og hjartahlýrri ungri konu með hlýtt viðmót.“