Meira en 150 er saknað eftir mikla skólgarelda í norðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum. Um er að ræða helsta vínframleiðslusvæði ríkisins.
Lögregla hefur staðfest 17 dauðsföll í tengslum við brunann. Auk þess eru meira en 2.000 byggingar ónýtar en eldurinn braust út á sunnudag.
Bærinn Santa Rosa, rétt norðan við San Francisco, hefur orðið einna verst úti í eldsvoðanum en heilu hverfin hafa þurrkast út þar.
Í það minnsta ellefu hafa látið lífið í Sonoma-héraði en eldarnir eru með þeim mannskæðustu í Kaliforníu.
Upptök skógareldanna eru enn ókunn en miklir þurrkar hafa verið á svæðinu í talsverðan tíma. Slökkviliðsstarf hefur gengið erfiðlega, sérstaklega vegna mikilla vinda.