Að minnsta kosti 396 eru látnir eftir að jarðskjálfti skók svæðið á landamærum Írans og Írak í gærkvöldi. Talið er að í það minnsta sjö þúsund hafi slasast en fjöldi fólks leitar að ættingjum og vinum í rústum.
Jarðskjálftinn, sem var 7,3 stig, er sá mannskæðasti á þessu ári.
Flestir sem létust voru í Kermanshah-héraði í vesturhluta Írans. Björgunarfólk hefur hafið leit að eftirlifendum þar en björgunaraðgerðir gengu illa fyrst um sinn vegna skriðufalla.
„Ég sat og borðaði kvöldmat með börnunum mínum þegar skyndilega var eins og byggingin dansaði,“ sagði Majida Ameer við Reuters en hún býr í Baghdad í Írak.
„Fyrst hélt ég að þetta væri stór sprengja. Síðan heyrði ég fólk í kringum mig öskra: „Jarðskjálfti!“,“ bætti hún við.