Vonir um um að finna argentínskan kafbát með 44 manna áhöfn innanborðs hafa nú vaknað eftir að bandaríski sjóherinn telur sig hafa numið merki sem gæti hafa verið neyðarkall frá bátnum. Ekkert samband hefur þó náðst við kafbátinn í fjóra daga. AFP-fréttastofan greinir frá.
Báturinn, San Juan, virðist hafa gefið frá sér nokkur merki en ekkert þeirra þó nógu sterkt til að staðsetja bátinn, en reynt er að vinna með þær upplýsingar sem þó hafa fengist.
Bandaríski herinn hefur nú sent af stað flugvél til að taka þátt í leitinni að bátnum og lendir hún í Argentínu síðar í dag, en alþjóðlegar björgunarsveitir hafa tekið þátt í leitinni að kafbátnum ásamt heimamönnum.
Kafbáturinn var á leið frá Ushuaia, sem er syðsti oddi Suður-Ameríku, og í herstöðina við Mar del Plata, sem er suður af Buenos Aires.
Sterkir vindar og mikill öldugangur gerar leitina erfiðari, en talið er að samskiptaleysi við kafbátinn mætti rekja til rafmagnsleysis. Vinnureglur sjóhersins kveða á um að tapist samskipti eigi kafbátar að koma upp á yfirborðið og er því búist við að báturinn sé á yfirborðinu.