Norðurkóreskur hermaður sem var skotinn að minnsta kosti fimm skotum þar sem hann reyndi að flýja suður er kominn aftur til meðvitundar.
Hermaðurinn óskaði eftir því að fá að horfa á sjónvarpið og samkvæmt Yonhap-fréttavefnum bað hann sérstaklega um að fá að sjá suðurkóreskar kvikmyndir.
„Við teljum að mesta hættan sé nú liðin hjá,“ sagði embættismaður í Suður-Kóreu við Yonhap.
Hermaðurinn flúði yfir hlutlausa svæðið á milli Kóreuríkjanna í síðustu viku en samlandar hans skutu í það minnsta 40 skotum í áttina að honum áður en hann komst í öruggt skjól. Læknar segja að hermaðurinn hafi orðið fyrir talsverðu áfalli.
„Suðurkóreska fánanum hefur verið komið fyrir í herbergi hans til að koma honum ekki í óþarfa uppnám,“ sagði embættismaðurinn.
Óvenjumikið magn af sníkjudýrum fannst í innyflum mannsins. Læknar sögðu að „verulega mikið magn“ orma væri í líkama hans sem gæti valdið sýkingum í sárum.
„Ég hef aldrei á mínum 20 ára ferli sem læknir séð annað eins,“ hefur BBC eftir suðurkóreska lækninum Lee Cook-jong. Lengsti ormurinn sem hann fjarlægði úr innyflum mannsins var 27 cm langur.