Harry Bretaprins og kærasta hans, Meghan Markle, eru trúlofuð en þetta kemur fram í tilkynningu frá bresku konungsfjölskyldunni.
Þar kemur fram að brúðkaup þeirra verður næsta vor en greint verður frá nánari tímasetningu þegar nær dregur.
Harry og Markle trúlofuðu sig í London fyrr í þessum mánuði en Harry hefur upplýst drottninguna og aðra fjölskyldumeðlimi um ráðahaginn.
Áður hafði fulltrúi veðmálafyrirtækisins Ladbrokers sagt í viðtali að fólk elskaði jólatrúlofun og von væri á einni slíkri, sem varð síðan raunin.
Skötuhjúin eru búin að vera saman í tæpt eitt og hálft ár og voru saman á opinberum viðburði í Kanada í haust. Þau búa saman í London.