Palestínumenn mótmæltu þriðja daginn í röð á Vesturbakkanum í dag. Mótmælin snúa að ákvörðun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels.
Hundruð mótmæltu í dag, töluvert færri en í gær, samkvæmt frétt BBC.
Ísraelar hafa ávallt litið á Jerúsalem sem sína höfuðborg á meðan Palestínumenn gera tilkall til austurhluta borgarinnar, sem Ísraelar hernámu í sex daga stríðinu árið 1967, sem tilvonandi höfuðborgar Palestínu sem sjálfstæðs ríkis.
Um 600 Palestínumenn mótmæltu á yfir 20 stöðum á Vesturbakkanum. Átök hafa verið minniháttar, en steinum hefur verið kastað og gassprengjum hefur verið varpað. Þrír Ísraelar slösuðust þegar strætisvagn var grýttur í norðurhluta borgarinnar.
Mótmæli hafa einnig farið fram við landamæri Gaza. Þar fóru fram útfarir tveggja sem féllu í átökum við ísraelska hermenn í gær. Þúsundir voru viðstaddir útfarirnar.