Þyrluflugmaður og fyrrverandi lögreglumaður var myrtur eftir níu klukkustunda langt umsátur í nágrenni höfuðborgar Venesúela í gær.
Ríkisstjórn Venesúela greinir frá þessu. Stjórnvöld greindu frá því að flugmaðurinn, Oscar Pérez, væri hryðjuverkamaður en hann henti handsprengjum í átt að húsi í eigu stjórnvalda í sumar úr þyrlu sem hann stal.
Síðan þá hefur Pérez verið á flótta. Pérez birti myndskeið á samfélagsmiðlum í umsátrinu þar sem hann sagðist hafa boðist til að gefa sig fram. Stjórnvöld hefðu ekki tekið það í mál, heldur vildu þau bara myrða hann.
Pérez setti inn myndband á Instagram eftir árásina í sumar. Þar játaði hann sök og bað íbúa Venesúela að rísa upp gegn ríkisstjórn Nicolás Maduros forseta.
Ríkisstjórnin sagði að þyrlan hafi skotið 15 skotum á viðburð á vegum innanríkisráðuneytisins. Síðan flaug hún yfir dómshúsið og varpaði fjórum sprengjum. Þyrlan var merkt rannsóknarlögreglunni CICPC sem Oscar Pérez hafði unnið fyrir í 15 ár.