Forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, segist vonast til þess að hernaði Tyrkja gagnvart kúrdískum skæruliðum í norðurhluta Sýrlands ljúki á stuttum tíma. Hann ræddi við blaðamenn í Bursa-héraði í morgun en tyrkneski herinn hóf loftárásir á svæði undir yfirráðum Kúrda í gær.
Aðgerð tyrkneska hersins „Olive Branch“ hófst klukkan 14 í gær að íslenskum tíma og beinist gegn kúrdísku hersveitunum Verndarsveitumr þjóðarinnar (YPG) sem Tyrkir segja hryðjuverkasamtök. Bandaríkjaher hefur veitt YPG margvíslegan stuðning undanfarin ár. Jafnframt eru Tyrkir að gera loftárásir á búðir vígasveita Ríkis íslams.
Varnarmálaráðherra Frakklands, Florence Parly, hvetur Tyrki til þess að hætta hernaði gegn Kúrdum í Afrin-héraði. Segir hún að YPG gegni lykilhlutverki í baráttunni gegn hryðjuverkum í þessu stríðshrjáða landi. „Okkar forgangsmál er baráttan við hryðjuverk,“ segir hún.
Á sama tíma og hún lét ummælin falla í viðtali við franska sjónvarpið hófu Tyrkir landhernað í norðurhluta Sýrlands.