Martin Schulz, leiðtogi Jafnaðarmanna (SPD) í Þýskalandi, mun ekki sækjast eftir ráðherraembætti í nýrri samsteypustjórn með Kristilegum demókrötum. Hann tilkynnti þetta í dag.
„Hér með afsala ég mér sæti í ríkistjórn og vonast til að sú ákvörðun verði til þess að deilurnar hætti að snúast um einstaklinga,“ sagði Schulz í yfirlýsingu sinni, en fyrri áform hans um að taka embætti utanríkisráðherra í stjórn Merkel voru umdeild innan Jafnaðarmannaflokksins. „Ég set hagsmuni flokksins framar mínum persónulega metnaði,“ bætti hann við.
Stjórnarsáttmáli flokkanna var undiritaður á miðvikudag eftir margra vikna viðræður flokkanna, en viðræður um efni sáttmálans stóðu yfir í þrjá daga. Vonir eru bundnar við að nú sé fjögurra mánaða stjórnarkreppu í Þýsaklandi lokið, en það er þó enn ekki alveg víst.
Nú á eftir að leggja stjórnarsáttmalann fyrir fyrir 460 þúsund flokksmenn Jafnaðarmannaflokksins til samþykktar eða synjunar en gert er ráð fyrir að niðurstaðan liggi fyrir eftir um þrjár vikur. Vitað er að vinstrisinnar innan flokksins hafa tekið höndum saman við ungliðahreyfingu flokksins í þeirri von að þeim megi takast að fella sáttmálann.