Frönsku hjálparsamtökin Læknar án landamæra, Médecins Sans Frontières, segjast hafa brugðist við 24 tilkynningum um kynferðislegt ofbeldi og áreitni á síðasta ári. Nítján manns var sagt upp störfum í kjölfarið.
Samtökin segjast hafa fengið 146 kvartanir eða ábendingar í fyrra og hafi 24 mál verið talin tengjast kynferðislegri áreitni eða ofbeldi.
Um 40 þúsund manns starfa á vegum Lækna án landamæra um allan heim hverju sinni, aðallega á stríðshrjáðum svæðum. Samtökin eru því ein þau stærstu sinnar tegundar í heiminum.
Á síðustu dögum hafa verið sagðar fréttir af því að starfsmenn góðgerðarsamtakanna Oxfam hafa orðið uppvísir að því að misnota aðstöðu sína við störf sín á stríðshrjáðum svæðum og hamfarasvæðum. Voru níu manns annað hvort reknir úr starfi eða þeir beðnir að segja upp vegna ásakana um vændiskaup á Haítí árið 2010.
Síðustu daga hafa fyrrverandi starfsmenn samtakanna sagt yfirstjórn þeirra hafa vitað af kvörtunum vegna mannanna áður en þeir fengu stöður sínar á Haítí. Hafi að minnsta kosti einn þeirra orðið uppvís að svipaðri hegðun við störf í Afríkuríkinu Tjad. Stjórnendur Oxfam neita að hafa hylmt yfir með brotamönnunum.
Priti Patel, fyrrverandi ráðherra þróunarmála í Bretlandi, segir að ásakanir á hendur starfsmönnum Oxfam séu aðeins „toppurinn á ísjakanum“. Eftirmaður hans í starfi segir að öll góðgerðarsamtök verði að taka af skarið og gera hreint fyrir sínum dyrum.