Kona frá El Salvador sem var dæmd í 30 ára fangelsi fyrir morð þegar hún missti fóstur var látin laus úr fangelsi í dag. Konan, Teodora Vasquez, missti fóstrið fyrir tíu árum, þá 24 ára gömul.
Vasquez var klædd í hvíta stuttermabol þegar hún kom út úr fangelsinu en þar var henni fagnað af vinum og ýmsum mannréttindasamtökum sem hafa krafist þess að lögum um fóstureyðingar í El Salvador verði breytt. Samkvæmt núgildandi lögum eru fóstureyðingar stranglega bannaðar í El Salvador undir hvaða kringumstæðum sem er. Á þeim lagagrunni var Vasquez dæmd.
Foreldrar Vasquez og 14 ára gamall sonur hennar tóku líka fagnandi á móti henni.
„Hún er frjáls. Theodora er ánægð og fegin að öðlast aftur frelsi. Hún er nú þegar búin að hitta fjölskyldu sína og er á heimleið,“ sagði Jorge Menjivar, talsmaður mannréttindasamtaka í El Salvador, við AFP.
Vasquez var dæmd fyrir morð árið 2008 en hún missti fóstrið árið 2007, á síðasta mánuði meðgöngunnar. Hún var handtekin eftir að hún missti fóstrið og dvaldi ellefu ár á bak við lás og slá.
Hæstiréttur landsins útskýrði ákvörðun sína að láta Vasquez lausa ekki nánar.
Mannréttindasamtökin Amnesty International krefjast þess að stjórnvöld í El Salvador breyti lögum um fóstureyðingar til að vernda konur landsins fyrir ómannúðlegri og niðurlægjandi meðferð sem þær nú þurfa að þola vegna laganna.
El Salvador er í hópi fimm ríkja heims þar sem fóstureyðingar eru bannaðar með öllu. Lögin voru sett árið 1998 og samkvæmt þeim má ákæra konur fyirr morð séu þær grunaðar um brot á lögunum.