Leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong-un hefur boðið Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, á sinn fund og hefur sá síðarnefndi sagt að hann muni þiggja boðið. Jafnframt hefur Kim samþykkt að stöðva kjarnorku- og eldflaugatilraunir landsins.
Samkvæmt frétt BBC var það háttsettur embættismaður frá Suður-Kóreu sem starfar í Washington sem færði bandarískum yfirvöldum bréf frá Kim þar sem hann óskar eftir fundi með Trump.
Trump segir þetta vera mikið framfaraspor en að áfram verði viðskiptaþvinganir í gildi gagnvart N-Kóreu. Að minnsta kosti þangað til formlegt samkomulag hafi náðst. Norður-Kórea hefur ekki gefið út neina formlega yfirlýsingu vegna málsins.
Þjóðaröryggisráðgjafi Suður-Kóreu, Chung Eui-yong, ræddi við fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið eftir fund með Trump. Þar sagðist hann hafa tjáð Trump að leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong-un, hafi sagt á fundi með ráðamönnum í Suður-Kóreu að hann væri reiðubúinn til þess að afkjarnorkuvæðast.
Chung segir að Trump hafi sagt að hann væri reiðubúinn að hitta Kim Jong-un í maí þar sem þeir myndu ræða formlega um afkjarnorkuvæðingu N-Kóreu.
Kim Jong Un talked about denuclearization with the South Korean Representatives, not just a freeze. Also, no missile testing by North Korea during this period of time. Great progress being made but sanctions will remain until an agreement is reached. Meeting being planned!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) March 9, 2018