Brottrekstur Rex Tillerson úr embætti utanríkisráðherra Bandaríkjanna sýnir að bandarísk stjórnvöld ætla að slíta kjarnorkusamningnum á milli Tehran og stórvelda heimsins.
Þetta sagði Abbas Araghchi, aðstoðarutanríkisráðherra Írans.
„Bandaríkin eru staðráðin í því að yfirgefa kjarnorkusamninginn og breytingar í utanríkisráðuneytinu voru gerðar með það í huga, eða að minnsta kosti var það ein af ástæðunum,“ sagði Araghchi.
Donald Trump Bandaríkjaforseti lét hafa eftir sér eftir brottvikningu Tillerson að þeir tveir hafi ekki verið sammála um kjarnorkusamninginn við Íran.
„Þegar horft er til baka til samningsins við Íran þá fannst mér hann hræðilegur en honum fannst samningurinn í fínu lagi. Ég vildi annað hvort slíta honum eða gera eitthvað en hann var ósammála. Svo við hugsuðum ekki það sama,“ sagði Trump.