70 manns hið minnsta eru sögð hafa farist í efnavopnaárás á borgina Douma í Ghouta-héraði á Sýrlandi, en Douma er síðasta borgin í héraðinu sem er enn á valdi uppreisnarmanna.
Björgunarmenn, sem tilheyra hópi sem kallar sig Hvítu hjálmana sem starfar á svæðum uppreisnarmanna, hafa birt á Twitter myndir af látnum og segja fjölda látinna líklega eiga eftir að hækka. BBC segir fréttir af árásinni ekki hafa verið staðfestar af óháðum aðilum, en sýrlensk stjórnvöld segja um tóman „tilbúning“ að ræða.
Bandaríska utanríkisráðuneytið segir fréttir gefa til kynna „mögulega mikið mannfall“ m.a. af fjölskyldum sem hafast við í neyðarskýlum. Segja Bandaríkjamenn að rússneskir ráðamenn, „með viðvarandi stuðningi sínum“ við sýrlensk stjórnvöld beri „á endanum ábyrgð“ á hinum meintu árásum.
„Sýrlenskra stjórnvalda hafa sögu af því að nota efnavopn á eigin borgara og hún er ekki dregin í efa,“ sagði í yfirlýsingunni.
Mannúðar- og læknasamtök og aðgerðarsinnar hafa birt fréttir af efnavopnaárás, en tölur yfir látna og hvað raunverulega hafi gerst er enn á reiki.
„Sjötíu manns létust af völdum köfnunar og hundruð eiga enn í andnauð,“ sagði Raed al-Saleh, leiðtogi Hvítu hjálmanna. Í pósti sem birtur var á Twitter og sem nú hefur verið eytt var tala látinna sögð vera 150.
Fjölmiðlamiðstöðin í Ghouta, Ghouta Media Center sem er á bandi uppreisnarmanna, sagði á Twitter að rúmlega 75 manns hefðu „kafnað“ og að um þúsund manns til viðbótar hefðu orðið fyrir áhrifum af hinni meintu árás.
Segja þau efnavopnunum hafa verið varpað úr þyrlu með tunnusprengju sem hafi innihaldið sarín taugagas.
Union of Medical Relief Organizations, sem eru bandarísk hjálparsamtök sem vinna með sýrlenskum sjúkrahúsum, sögðu BBC að sjúkrahús í Damaskus hafi staðfest lát 70 manns.