Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna urðu fyrir árás í Mið-Afríkulýðveldinu í nótt. Árásin var gerð eftir að friðargæsluliðarnir höfðu ásamt stjórnarher landsins farið í aðgerðir til að uppræta vopnaða hópa í úthverfi höfuðborgarinnar Bangui. Að minnsta kosti tveir létust í því áhlaupi.
Nokkrum tímum síðar var ráðist á friðargæsluliðanna í miðborg Bangui, skammt frá forsetahöllinni. Árásin stóð í um hálftíma og var beint gegn friðargæsluliðunum að því er talsmaður friðargæsluliðsins segir við AFP-fréttastofuna.
Enn er verið að kanna hver stóð að baki árásinni.
Árásarmennirnir komu á mótorhjóli sem merkt var Sameinuðu þjóðunum, að því er sjónarvottar segja. Friðargæsluliðarnir, sem eru frá Egyptalandi, svöruðu fyrir sig með skothríð. Engar frekari upplýsingar hafa borist um árásina.
Stjórnarherinn í Mið-Afríkulýðveldinu hefur átt fullt í fangi með að halda friðinn eftir að blóðug borgarastyrjöld braust út árið 2013. Í henni var leiðtoga landsins til fleiri ára, Francois Bozize, steypt af stóli.
Frakkar tóku þátt í að brjóta uppreisnina á bak aftur en Mið-Afríkulýðveldið var áður nýlenda þeirra.