Spurningaflóðið jókst og nefndarmenn trufluðu Mark Zuckerberg, forstjóra og stofnanda Facebook, ítrekað í svörum sínum þegar hann kom öðru sinni fyrir þingnefnd á Bandaríkjaþingi í dag.
Tæplega 100 embættismenn hafa spurt Zuckerberg ýmissa spurninga síðustu tvo daga og tóku vitnaleiðslurnar alls tíu klukkustundir.
Zuckerberg baðst í gær afsökunar á því hvernig Facebook hefur tekið á vaxandi reiði eftir að ljóst var að fyrirtækið lak upplýsingum um milljónir notenda til breska fyrirtækisins Cambridge Analytica, sem starfaði fyrir kosningaskrifstofu Donald Trump. Zuckerberg lofaði breytingum en upplýsingum um 87 milljónir Facebook-notenda var deilt með Cambridge Analytica.
Embættismenn úr orku- og viðskiptamáladeild fulltrúardeildar þingsins báru meðal annars upp spurningar fyrir Zuckerberg í dag og spurði Anna Eshoo, þingmaður demókrata í Kaliforníu, hvort upplýsingum um hann sjálfan hefði verið lekið til Cambridge Analytica. Svar hans var einfalt. Já.
Spurningar dagsins beindust aðallega að öryggisstillingum notenda og hvort regluvæða ætti samfélagsmiðla líkt og Facebook.
Nefndarmenn spurðu Zuckerberg einnig af hverju þeir ættu að treysta honum. Mike Doyle, þingmaður demókrata, sagði að um augljósan trúnaðarbrest væri að ræða.
Þá sagði Jennifer Grygiel, prófessor við Syracuse-háskólann í New York, að vitnaleiðslurnar mörkuðu ákveðin þáttaskil. „Þetta er fyrsta skrefið í átt að þarfri reglugerð,“ sagði Grygiel.