Alek Minassian, sem varð 10 manns að bana er hann ók á gangandi vegfarendur í Toronto á mánudagskvöldið, lofaði morðingjann Elliot Rodger á Facebook nokkrum mínútum áður en hann lét til skara skríða að því er BBC greinir frá.
Rodger myrti sex manns og særði fjórtán í skotárás á háskóla í Santa Barbara í Kaliforníu 2014 og tók að því loknu eigið líf.
Minassian kom fyrir dóm í gær þar sem gefin var út ákæra á hendur honum fyrir manndráp af fyrstu gráðu. Hann er einnig ákærður fyrir margar tilraunir til manndráps. 10 létust og 15 slösuðust í árásinni í gær.
Sagði Minassian í Facebook-færslu sinni að uppreisn þeirra sem ekki væru skírlífir að eigin ósk væri loksins hafin og að öllu myndarlega fólkinu yrði steypt af stóli. „Allir fagni hinum ofurmannlega herramanni Elliot Rodger!“
Minassian er þá sagður hafa eytt löngum stundum á svonefndri Incel-spjallsíðu á Reddit þar sem karlar kvarta yfir skírlífi sínu og kenna konum um. Síðunni var lokað fyrir nokkru.
Graham Gibson hjá lögreglunni í Toronto sagði á fundi með fréttamönnum að konur væru fjölmennastar í hópi þeirra sem létust og særðust í árásinni.
Nöfn þeirra sem létust hafa enn ekki verið gerð opinber.
Minassian er í haldi lögreglu og hefur verið yfirheyrður. Hann hefur ekki komið við sögu lögreglu og er ekki að finna í gagnasöfnum hennar. Ekki er vitað til að hann tengist hryðjuverka- eða öfgasamtökum af nokkru tagi.
Kanadíski herinn hefur staðfest að Minassian hafi gegnt herþjónustu um tveggja mánaða skeið síðla árs í fyrra. Hann óskaði síðar eftir því að losna undan herþjónustu og var orðið við því.
Fyrrverandi skólafélagar Minassian segja hann hafa verið í skóla í norðurhluta Toronto fyrir nemendur með sérþarfir. Sagði einn skólafélaganna, Shereen Chami, að hann hafi gengið um skólasvæðið með höfuð ofan í bringu sér og greipar spenntar og gefið frá sér mjálmhljóð.
Hann hafi þó ekki verið ofbeldishneigður. „Hann var ekki félagslyndur, en eftir því sem ég best man var hann algjörlega meinlaus,“ sagði Chami við Reuters.