Tom Evans, faðir Alfie litla sem berst fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi Liverpool, hvetur þá sem hafa sýnt fjölskyldunni stuðning í baráttunni fyrir leit að lækningu fyrir drenginn að halda áfram sínu daglega lífi.
Foreldrar Alfies hafa staðið í harðri baráttu í tæpt ár vegna veikinda sonar síns, sem er 23 mánaða gamall og þjáist af afar sjaldgæfum taugahrörnunarsjúkdómi sem veldur því að hann fær ítrekaða krampa.
Alfie hefur verið í dái í eitt ár og hefur verið haldið á lífi með aðstoð öndunarvélar. Slökkt var á öndunarvélinni á mánudagskvöld í kjölfar dómsúrskurðar og hafa foreldrarnir óskað eftir því að leita meðferðar í Róm á sjúkrahúsi sem er rekið af Páfagarði. Áfrýjunardómstóll meinaði foreldrunum að ferðast með Alfie í gær og byggði úrskurð sinn á því að drengurinn sé of veikburða.
Nú virðast foreldrarnir vera sáttir við að dvelja í Liverpool. „Lífi okkar hefur verið snúið á hvolf vegna þeirrar miklu athygli sem Alfie og staða hans hefur fengið,“ sagði Tom í samtali við fjölmiðla fyrir utan Alder Hey-barnasjúkrahúsið í dag. Fjölskyldan hefur komist að samkomulagi við lækna Alfies um að hann dvelji áfram í Bretlandi.
„Litla fjölskyldan okkar ásamt Alder Hey hefur vakið mikla athygli með þeim afleiðingum að við höfum ekki getað háttað lífi okkar eins og við viljum,“ sagði Tom. Hann þakkaði þann mikla stuðning sem fjölskyldunni hefur verið sýndur, meðal annars í Póllandi og á Ítalíu. „Við viljum hins vegar biðja ykkur um að snúa aftur til ykkar daglega lífs og leyfa mér, Kate [móður Alfie] og Alder Hey að mynda gott samband, byggja brú og ganga yfir hana,“ sagði Tom.
Starfsfólk sjúkrahússins hefur þurft að þola mikið áreiti frá almenningi sem hefur krafist þess að Alfie verði leyft að yfirgefa sjúkrahúsið.
Tom sagði að nú yrði lögð áhersla á að Alfie fengi sem besta meðferð í samráði við lækna á Alder Hey-barnasjúkrahúsinu. Fjölskyldan muni ekki senda frá sér fleiri tilkynningar eða veita fleiri viðtöl. „Við vonum að þið virðið það.“
Alfie hefur andað að sjálfsdáðum frá því að slökkt var á öndunarvélinni á mánudag, öllum að óvörum og sérstaklega læknunum. Til stendur að Alfie fái að fara heim til sín, en hann hefur dvalið á sjúkrahúsinu í rúmt ár. „Þriðja daginn í röð hefur hann ekki átt í neinum vandræðum með öndun. Hjúkkurnar koma inn og segja: „Vá,““ sagði Tom. Alfie hefur hins vegar ekki ennþá komist til meðvitundar og óljóst er hvort og hvenær það gerist.