Árásarmaðurinn í París kallaði Allah Akbar( Guð er mikill) þegar hann réðst á vegfarendur í miðborg Parísar í kvöld. Einn lést í árásinni og fjórir særðust. Árásarmaðurinn var skotinn til bana af lögreglu. Þetta kom fram í máli saksóknarans í París, François Molins, þegar hann ræddi við fréttamenn í kvöld. Tveir þeirra sem særðust eru alvarlega særðir en tveir minna.
Gríðarleg ringulreið skapaðist þegar maðurinn réðst á fólkið skammt frá Garnier Óperunni í öðru hverfi en árásin var gerð við rue Monsigny um níu leytið í kvöld. Árásin er rannsökuð sem hryðjuverk og hafa vígasamtökin Ríki íslams lýst ábyrgð á árásinni. Þetta kemur fram á vef SITE. Þar kemur fram að sá sem framdi árásina sé hermaður Ríkis íslams.
BFM sjónvarpsstöðin ræddi við veitingahúsagest við götuna sem sagði að ung kona hafi verið við innganginn á veitingastaðnum þegar maðurinn kom aðvífandi og réðst á hana með hnífi. Vinur hennar kom henni til aðstoðar og flúði þá árásarmaðurinn af vettvangi yfir á næstu götu. Sá sem lést í árásinni var 29 ára gamall maður, segir í frétt Le Parisien.
Lögreglan hefur girt af stórt svæði í kringum Óperuna og hefur meðal annars neðanjarðarlestarstöðinni Quatre Septembre verið lokað tímabundið. Þau sem særðust í árásinni voru öll flutt á Georges-Pompidou sjúkrahúsið.
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segir að enn einu sinni þurfi Frakkar að greiða fyrir með blóði en alls hafa 245 dáið í árásum vígamanna í landinu á síðustu þremur árum.