Einhver spurði Jarðvísindastofnun Bandaríkjanna í fullri alvöru hvort að það væri í lagi að grilla sykurpúða ofan á eldfjallinu á Hawaii.
Og Jarðvísindastofnunin gaf sér í fullri alvöru tíma til að svara.
Fyrirspurnin var sett frá á Twitter. „Er það öruggt að grilla sykurpúða ofan á eldfjalli? Ef maður er með nógu langt prik, það er að segja. Eða yrðu sykurpúðarnir eitraðir?“
Jarðvísindastofnun Bandaríkjanna var skjót til svars.
„Eeeh... við verðum að segja nei, það er ekki öruggt (Og gerðu það fyrir okkur, ekki reyna!),“ stóð í svari stofnunarinnar á Twitter. „Ef eiturgufur koma upp úr gossprungunum þá myndu sykurpúðarnir bragðast ILLA.“
Erm...we're going to have to say no, that's not safe. (Please don't try!) If the vent is emitting a lot of SO2 or H2S, they would taste BAD. And if you add sulfuric acid (in vog, for example) to sugar, you get a pretty spectacular reaction.
— USGS Volcanoes🌋 (@USGSVolcanoes) May 29, 2018
Eiturgufur koma einnig upp úr gossprungunum þaðan sem bráðin kvika flæðir. Óþefurinn getur einnig verið mikill af þessum gastegundum.
Eldfjallið Kilauea á Hawaii hóf að gjósa þann 3. maí á stærstu eyju eyjaklasans. Að minnsta kosti 71 hús hefur orðið hraunstraumnum af bráð og um 2.000 manns hafa orðið að flýja heimili sín.