Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, verður síðastur leiðtoga ríkjanna sjö til þess að mæta á G7-fundinn sem hefst í Kanada í dag. Hann á líka von á því að verða fyrstur til þess að yfirgefa fundinn.
Gert er ráð fyrir að fundurinn verði sá hatrammasti í mörg ár þar sem meðal annars verður rætt um tollamál. Bæði yfirvöld í Kanada og Frakklandi hafa harðlega gagnrýnt ákvörðun Trumps um að setja tolla á innflutning á stáli og áli til Bandaríkjanna. En það er ekki eina málið sem deilt verður um því kjarnorkusamningur við Íran og loftslagsmál verða einnig rædd á fundinum.
Leiðtogar Kanada, Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Ítalíu, Japan og Þýskalands mæta til fundarins síðar í dag í bænum La Malbaie í Quebec.
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, skrifar á Twitter að ef Trump vilja verða einangraður þá geti ríkin sex skrifað undir samkomulag sín á milli því þessi sex ríki standi vörð um gildi. Þau virði sameiginlega markaði.
Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur einnig sótt að Trump og segir að þegar Trump vísi í þjóðaröryggi þegar hann reynir að verja innflutningstolla á ál og stál þá sé það hlægilegt.
Trump svarar þeim fullum hálsi á Twitter líkt og venjan er.
Why isn’t the European Union and Canada informing the public that for years they have used massive Trade Tariffs and non-monetary Trade Barriers against the U.S. Totally unfair to our farmers, workers & companies. Take down your tariffs & barriers or we will more than match you!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) June 8, 2018
Please tell Prime Minister Trudeau and President Macron that they are charging the U.S. massive tariffs and create non-monetary barriers. The EU trade surplus with the U.S. is $151 Billion, and Canada keeps our farmers and others out. Look forward to seeing them tomorrow.
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) June 7, 2018