Flautað hefur verið leiks á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu árið 2018. Luzhniki-leikvangurinn í Moskvu er þétt setinn, en þar fylgjast um 80.000 manns með opnunarleik mótsins sem er á milli gestgjafanna og Sádi-Araba.
Áður en leikurinn hófst var heimsmeistaramótið sett með viðhöfn, þar sem mikið var um dýrðir. Enski söngvarinn Robbie Williams söng meðal annars fyrir mannfjöldann ásamt rússnesku sópransöngkonunni Aida Garifullina.
Hér að neðan má sjá fleiri myndir frá opnunarhátíðinni.