Cosby fær sér nýjan lögmann

Bill Cosby.
Bill Cosby. AFP

Bandaríski kvikmyndaleikarinn Bill Cosby, sem var sakfelldur í apríl fyrir kynferðislegt ofbeldi, hefur ákveðið að skipta um lögmann áður en dómur verður upp kveðinn yfir honum. 

Fram kemur í frétt AFP að nýji lögfræðingurinn sé Joseph P. Green en hann kemur í stað Tom Mesereau en Mesereau er þekktur fyrir að taka að sér mál einstaklinga úr röðum fræga fólksins. Fyrsti lögmaður Cosbys var Brian McMonagle.

Talsmaður Cosbys greindi frá þessu í gær en ekki kom fram hvers vegna leikarinn hefði ákveðið að skipta um lögmann. Fyrsta verkefni Greens verður að fara fram á vægan dóm yfir Cosby þegar dómur verður kveðinn upp sem gert er ráð fyrir að verði 24. september. Hugsanlegt er einnig að dómnum verði áfrýjað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert