Angela Merkel Þýskalandskanslari hefur lagt fram hugmyndir um aðgerðir til að takmarka flæði flóttamanna til landsins, samkvæmt skjali sem ætlað er samstarfsflokkum hennar í ríkisstjórn.
Lagt er til að hælisleitendur sem koma til Þýskalands eftir að hafa fyrst verið skráðir í öðru ríki verði færðir til lokaðra miðstöðva á borð við þeirra sem samið var um á leiðtogafundinum.
Merkel og forystumenn CSU, systurflokks Kristilegra demókrata í Bæjaralandi, hafa síðustu vikur deilt um málefni hælisleitenda. Horst Seehofer, innanríkisráðherra kemur úr CSU. Hann vill að þýsku lögreglunni verði heimilað að snúa öllum hælisleitendum við á landsmærum Þýskalands sem ekki geta framvísað gildum skilríkjum sem og þeim sem þegar hafa sótt um hæli annars staðar innan Evrópusambandsins. Merkel hefur hins vegar hingað til hafnað þeirri hugmynd og viljað taka á málinu á vettvangi ESB.
Á leiðtogafundi Evrópusambandsins í vikunni voru málefni flóttamanna til umræðu og segir í skjalinu að þýsk stjórnvöld hafi náð samkomulagi við 14 ESB-ríki um að þau taki við hælisleitendum sem fyrst voru skráðir í ríkinu. Sú fullyrðing hefur þó verið dregin í efa en tvö ríkjanna, Ungverjaland og Tékkland, hafna því að slíkt samkomulag hafi náðst. „Þjóðverjar hafa ekki borið þetta upp við okkur og ég mun ekki skrifa undir þetta samkomulag,“ sagði Andrej Babis, forsætisráðherra Tékklands í yfirlýsingu. „Engar samningaviðræður hafa farið fram milli Tékklands og Þýskalands um þetta.“
Á fundinum í Brussel sem stóð fram eftir nóttu samþykktu leiðtogar Evrópuríkjanna að heimila aðildarríkjum að koma upp lokuðum miðstöðvum þar sem gengið yrði úr skugga um stöðu hvers flóttamanns og ákveðið hverja eigi að senda úr landi.
Fjöldi þeirra sem koma ólöglega til Evrópusambandsríkjanna hefur dregist saman um 96% frá því að hann var mestur árið 2015. Þá hefur umsóknum um hæli í Þýskalandi fækkað um 20 % á fyrstu fimm mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra.