Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út í borginni Chiang Rai á Taílandi sem er í næsta nágrenni Tham Luang-hellanna eftir að ljóst var að tekist hefði að bjarga öllu fótboltaliðinu út. Enn eru fjórir kafarar inni í hellinum.
Blaðamaður Guardian sem er í borginni segir að bílstjórar þeyti flautur og að sjá megi fólk dansa á götunum. „Þetta er mikilvægur atburður í mínu lífi,“ segir Rachapol Ngamgrabuan, sem starfar hjá upplýsingastofu borgarinnar. „Ég hef grátið. Nú er ég hamingjusamur. Mjög hamingjusamur að sjá alla Taílendinga gleðjast saman.“
Prayuth Chan-o-cha, forsætisráðherra Taílands, hefur boðað alla þá sem komu að björgunaraðgerðunum til veislu á mánudag. „Við bjóðum öllum í mat,“ sagði hann.